Silfurberg: Mikilvægasta framlag Íslands til umheimsins?

 

Föstudaginn 29. apríl kl. 12:15 flytur Leó Kristjánsson erindi um silfurberg á Austurlandi, notkun þess og mikilvægi á heimsvísu. Boðið verður upp á súpu.

 

Leó Kristjánsson er jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Á síðastliðnum 16 árum hefur hann meðal annars unnið að öflun gagna um notkun silfurbergskristalla í vísindum, einkum á tímabilinu 1780-1930. Rannsóknir á þessum kristöllum,  sem fram til 1900, eða lengur,  komu í flestum tilvikum frá Helgustöðum í Reyðarfirði, höfðu mikil áhrif á þróun ljósfræði og juku skilning á eðli efnisheimsins.  Enn meiri urðu áhrif svonefndra Nicol-prisma úr silfurberginu, sem notuð voru í  sérhæfð ljóstæki til fjölbreytilegra rannsókna á mörgum sviðum raunvísinda. Er óhætt að segja, að íslenska silfurbergið hafi flýtt ýmsum mikilvægum tækniframförum mannkyns um áratugi.

 

Erindið er í senn sagnfræðilegt og jarðfræðilegt og er opið öllum.